jólahlaðborð 2026
Fullkomin jólastemmning og dekur!
Viltu flýja jólastressið? Leyfðu okkur að koma þér í rétta jólaskapið. Við bjóðum þér í ævintýralega dvöl þar sem bragðlaukarnir fá að njóta sín og líkaminn fær kærkomna hvíld.
Innifalið í jólapakkanum þínum:
Gisting í notalegu herbergi.
Glæsilegt jólahlaðborð þar sem jólastemmningin nær hámarki.
Morgunmatur sem fullkomnar dásamlegan morgun.
Ótakmarkað aðgengi að heilsulindinni: Endurnærðu þig í þremur gerðum af gufuböðum (blautgufa, þurrgufa og innrauð gufa) og slakaðu svo á í friðsæla hvíldarherberginu okkar.
Er kominn tími á nudd?
Fullkomnaðu slökunina með nuddmeðferð (vinsamlegast bókið með minnst 24 klst. fyrirvara) sjá verðskrá og nánari upplýsingar HÉR.
Verð:
27.300 kr. á mann miðað við tvo í herbergi.
38.700 kr. fyrir einbýli.
✨ Dekraðu við þig: Uppfærðu í Deluxe! ✨
Viltu meiri lúxus? Uppfærðu í Deluxe herbergi og fáðu meira pláss, stærra rúm og ískalt freyðivín ásamt gosdrykkjum sem bíða þín við komu.
32.300 kr. á mann miðað við tvo í Deluxe herbergi.
48.700 kr. fyrir einbýli í Deluxe.
(Ath. Gistináttaskattur, 800 kr. á herbergi á nótt, bætist við verðið).
jólaMatseðill 2026
Forréttir
Jólasíld, grafin lax, reyktur silungur, jólapate, hreindýrabollur, ostabakki, focaccia brauð og pestó.
Aðalréttir
Purusteik, Beef Wellington, Hamborgarahryggur og steikt rauðspretta. Meðlæti að hætti hússins.
Eftirréttir
Ris a la mande, Pavlova, súkkulaðimús og Tiramisu.
Algengar Spurningar
-
föstudagur 20 nóv, laugardagur 21 nóv, föstudagur 27 nóv, laugardagur 28 nóv (örfá herbergi laus), föstudagur 4 des og endum þetta á laugardeginum 5 des.
-
Til að byrja með er áherslan á gesti sem vilja koma í allann pakkann. Við munum skoða það síðar hvort að við opnum fyrir bókanir eingöngu í matarhlutann.
-
Ef þú ert með stóran hóp þá er allt mögulegt.
Hafðu samband við okkur og við sjáum til hvað hægt er að gera.

