Komum saman og prjónum!
Síðustu ár höfum við fyllt hótelið af stórkostlega skemmtilegum konum prjónandi í öllum hornum. Eins og fyrri ár tökum við á móti hámark 80 prjónurum til að vel fari um alla. Því er um að gera að bóka hratt og vel til að tryggja sér pláss. Við vonumst til að þú verðir með.
Hvernig á að skrá sig?
Bókaðu hjá okkur hér neðst á síðunni og við sendum þér staðfestingarpóst. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Jarðhræringar og öryggi
Það er engin ástæða til að hafa áhyggjur af öryggi af því að gista hjá okkur eða koma í Svartsengi. Við höfum staðið í þessum jarðhræringum vel á annað ár. Við höfum rýmt hótelið 9 sinnum og aldrei hefur neinn gestur verið í hættu. Svartsengi hefur verið með landris og landsig á víxl. Við slíkt hefur yfirborð styrkst.
Við tökum aldrei neina áhættu þegar kemur að öryggi gesta okkar og starfsfólks. Daglega eru hér á svæðinu um 2.000 manns sem eru að heimsækja okkur og Bláa Lónið, ásamt starfsfólki á svæðinu.
Ef einhver áhöld verða uppi varðandi öryggi þá einfaldlega blásum við prjónahelgina af.
frábær Dagskrá
Markmið helgarinnar er að áhugasamir prjónarar komi saman, eigi góða stund og kynnist nýju fólki. Svo hjálpast allir að og aðstoða hvort annað. Frábært tækifæri fyrir alla, hvort sem þú ert byrjandi eða reynslubolti.
Föstudagur 8. maí
Gestir byrja að týnast inn fram eftir degi, koma sér fyrir og hefjast handa við prjónavinnu.
Okkar skemmtilega “mingle bingó” verður auðvitað í gangi þannig að allir geti kynnst á skemmtilegan hátt.
Hressing um miðjan dag.
Um kvöldið verður boðið upp á kjarngóða súpu og heimabakað brauð. Okkar sérútbúnu prjónakokteilar verða á góðu verði.
Laugardagur 9. maí
Við hefjum daginn með morgunverðarhlaðborði og svo er hafist handa við að prjóna.
Til að brjóta upp dagskánna er hægt að bóka meðferðir í Kyrrðinni. Einnig er hægt að skella sér í gufubað en við erum með vatnsgufu (Steam bath), Infrarauða gufu (Infrared Sauna) og finnska gufu (Dry Sauna).
Léttur hádegisverður og svo um miðjan dag bjóðum við gestum okkar upp á kaffihressingu, höfum það kósý og höldum áfram að prjóna.
Kvöldverður og svo skemmtum við okkur saman, maður er manns gaman. Okkar sérútbúnu prjónakokteilar verða á góðu verði.
Sunnudagur 10. maí
Morgunverðarhlaðborð og prjónað fram að heimferð.
Herbergi og verð
Allt innifalið: Kostnaður per mann með gistingu, kvöldverðum, hádegisverði á laugardag, hressingu og morgunmat:
Gist í 4ra manna herbergi 38.500 kr per mann
Gist í 3ja manna herbergi 40.500 kr per mann
Gist í 2ja manna herbergi 45.500 kr per mann
Gist í 2ja manna Deluxe herbergi 53.000 kr per mann
Gistináttaskattur 800 kr. per herbergi per nótt, er rukkað aukalega
Við áskiljum okkur rétt til að fella niður viðburðinn ef þátttakan er ekki nægjanleg.

